Linda Rakel

Linda Rakel

15.03.2007 13:22:12 / lindajons

nýtt

sælsæl, ég  var minnt á að ég á bloggsíðu sem að maður á víst ekki að hunsa.

en ég vildi bara segja gleðilegt ár og takk fyrir það gamla:)

Við stöllur erum búnar að plana sumarið og við ættlum að halda sumarið okkar í kóngsins kaupmannahöfn. Já ég , Harpa B, Jóhanna T og kannksi Arnrún T og Auður Ó. Við erum komnar með íbúð og okkur vantar bara vinnu þar, það reddast allveg;) hmmm.... við Jóhanna vorum að ræða hvort við ættum ekki bara að fara út með eina brók, sokka og kaupa svo bara nýtt:D.

Við ætlum að koma heim einhvertíman í Ágúst og vinna jafnvel á hótel eddu því við förum náttúrulega í útskriftarferð 1. sept víííí.

Svo eru allir velkomnir að kíkka í heimsókn á okkur. Anna H og Sandra Birgis eru einhverstaðar rétt hjá okkur í kaupmannahöfn þannig þar verður Partý...!!!

Ég hef eitthvað verið að heyra að það sé ekkert kúl að eiga blogg síðu lengur, heldur þurfi maður að eiga myspace til að vera eitthvað.... já þeir sem eiga myspace eru eitthvað.... verð að eignast þannig!!!!

það er annars bara allt gott að frétta af mér og mínum, ég er í smá pásu frá skemmtanalífinu þangað til næst allavega,og þaðer bara fínnt


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:23:58 / lindajons

kominn tími til...

MIG VANTAR VINNU, KVÖLD OG HELGAR VINNU ... EF ÞIÐ VITIÐ UM EITTHVAÐ ER ÉG TIL Í AÐ VINNA VIÐ ÞAÐ... VÁ VANTAR ROOOOSALEGA MIKIÐ:!::!::!:

já það er vo sannarlega kominn tími til að blogga því ég hef ekkert annað að gera. Ég er semsagt veik núna og byrjaði í gær fór heim úr skólanum og var heima í dag og ætli ég verði ekki bara heima líka á morgunn, Bjartmar lá líka með mér og pabbi var eitthvað farinn að kvarta líka.

Svona er þetta og mig langar að deila því með ykkur að ég byrjaði daginn ælandi það var stuð og svo tóku við þæginlegir beinverkir, æðislega góður og mikill hausverkur, gott lystarleysi, skemmtilegur pirringur, unaðslegur eyrnaverkur og svona mætti lengi telja...

Ég elska að prjóna eins og einhverjir hafa kannski tekið eftir og það er búið að halda mér lifandi í dag ég er búin vera prjónandi í allan dag á milli þess sem ég skoða gamlar myndir og skemmti mér vel það má segja það að ég er búin að vera slöpp með myndavélina þessa önn og það verður ekki lengur... ég held ég hafi talið rétt 10 pottapartý á vorönn í 2. bekk en hvað eru komin mörg núna ? 18| hvað er að gerast...???

góðir tímar:)

Ég rakst inná síðuna hjá honum Árna Birni þar sem hann er að tala um hvað það var auðvelt að skemmta manni þegar maður var lítill en það er vo breytt nuna en ekki til hins verra... jú ég held að það sé til hins verra og ég kommentaði hjá honum eina litla dæmisögu um Birtu litlu dúllú... sagan er semsagt þannig að hún kom í mat til okkar og byrjaði að kasta kartöflum og grjónum um allt og hló ein og brjálaðingur og fannst það voða sniðugt en mér fannst það ekki eins fyndið... afhverju ekki?

Það var afmæli hjá Hörpu skörpu á laugardaginn, voða stuð ,voða gleði, voða margir dansar, voða margir, voða mikil drykkja, voða hressir pakkar:) hehe jájá þetta var voða gott partý:)

ætli ég fari ekki bara að hlada áfram að vera veik og skemmtileg bæjó


» 21 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 19:52:38 / lindajons

nr 38

tilkinning: ég var farin að hafa allveg rosalegar áhyggjur af því að ég væri búin að fitna svona rosalega mikið allavega var ég ekki buin að taka eftir svona miklum breytingum þangað til um daginn þá fór ég í svartan jakka sem ég var vön að vera í þykkri hettupeysu innanundir og hann var samt ennþá rúmur en allavega málin standa þannig að ég var að fara í hann um daginn, var ekki búin að fara í hann lengi en já eins og ég segi þá var ég bara í þunnum langerma bol og helvítis jakkinn var óþæginlega þröngur og erfitt að hneppa honum og ekki fræðilegur möguleiki ða vera í hettupeysu innanundir....:^) ég náttlega varð allveg brjáluð og skildi ekkert í þessu og spurði Bjartmar hvort ég væri búin að fitna eitthvað mikið og hann bara..hmm nei  og þá rauk í mig.... og svo var ég núna áðan að hengja upp helvítis litla jakkan og sá þá að hann var nr 36 og minn var 38... þessi er með efstu töluna en minn ekki þannig ég fattaði á þessarri stundu að þetta er ekki minn jakki,en allavega það er einhver núna úti í heimi sem að er í of stórum jakka sem vantar efstu töluna í..

þetta er Svartur H&M jakki tvíhneftur nr 36 hann er grænn/hvítur/rauður röndóttur að innan  og endilega hafið samband ef að þú villt fá jakkann þinn aftur því að mig langar endilega að fá minn aftur nr 38 því það er of kalt að vera ekki í peysu innanundir... ég sakna hans... plís

ég er alltaf að fara að setja inn myndir en það er ekkert í þessarri tölvu mín er ekki í viðgerð eftir 3 vikur og þetta átti að taka í mestalagi hálftíma....Arrrggg

já ég átti gott kvöld í gær og ég þakka BirnuPé fyrir það að hafa átt afmæli.... já við stúlkur skelltum okkur í afmælismatar boð sem bara hefði ekki getað heppnast betur VIÐ FENGUM KÓRÓNUR:) ég held að það hafi sett punktinn yfir i-ið. en ja við vorum hjá ÖnnuGé og stóðu veislu höldin langt fram á morgun en ég kannksi ekki allveg eins lengi:S hehe Takk Margrét fyrir skutlið... Við kíktum aðeins og Oddvitan eða hvað þetta heyrir nú, og dyravörðurinn var eitthvað voðalega fúll og ætlaði ekki að hleypa mér inn alltaf jafngaman að þessu sérstaklega þegar maður er nógu gamall8)

já ég skemmti mér konunglega og fór svo bara aftur til ÖnnuGé og þar var margmenni... ég þakka Snorra fyrir þolinmæðina hehe:) en já takk fyrir gott kvöld folks:)

fyrsti dagur vetrafrís fór í það taka upp myndband um Kindur hjá Lindu Árs og vaknaði mishress kl 9 eftir það er ég bara búin að hafa það gott uppí rúmmi... Bjartmar er að koma heim í kvöldvívíví og þá velti ég spurningunni á ykkur á að gera eittthvað meira um helgina kannksi á morgun?!?...

við fyrsta tækifæri set ég inn nokkrar myndir af útvöldum:) síjú

og um leið og ég og tækifæri gefst þá set ég inn myndir


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 22:06:23 / lindajons

nýtt upphaf

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast en reyndar ekkert mjög mikið búið að gerast... ég er hætt í bíóinu og Bjartmar flutti suður og það var draumur á Krít:)

já en það sem er á döfinni hjá mér núna á næstunni er:

  • fara suður á föstud
  • kyssa Bjartmar
  • vinna MK í framhaldsskóla mótinu í fótbolt  og til að segja frá því þá komust við M1 í úrslit og erum að fara suður að keppa á lau og keppum við MK og versló, já þetta er 7 manna bolti en MK voru bara svalar á því og voru 5 og rústuðu öllum sínum leikjum..... við förum létt með það hehe
  • sjá Mýrina hef heyrt að hún sé góð
  • skila ritgerð um sykursýki
  • skila fyrirlestri um Jón á bægisá
  • gera myndband um kindu já þetta á að vera líffræða legt myndband:)
  • Vetrarfrí og fara suður þá
  • skreppa í helgar ferð til Skotlands:) því að bróðir minn er að halda árshátið og ætlaði að vera svo góður að styrkja mig....
  • Vinna í lottó
  • Hey og já hafa matarboð á næstunni, hvað segiðið um það pottastúlkur? jafnvel hafa ríjúníon held það sé orið það langt síðan hmmm.....

já ég held að það sé bara komið sko það er allvega ekkert mikið meira sem ég er búin að plana....

Vá ég skellti mér í Vax í fyrsta sinn í gær og ´VVVÁÁÁ hvað þetta er vont maður, ég voða svöl og þóttist ekkert finna fyrir neinu en ég held ég hafi bara ekki svitnað jafn mikið... og taka það fram að þetta var bara á fótum, hvernig ætli brazilian vax sé?????

ég er búin að segja vá oft í þessarri færslu þannig þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það er spennandi að gera hana:) það er bara svo lítill tími til að blogga þar sem að ég er ekki í sögu lengur hjá Birni T...

en held nú bara að þetta sé orðið flott í bili og það verður ekki langt í næstu færslu...


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 22:20:27 / lindajons

Krít8)

Nú er það bókað mál að ég á besta kærasta í heimi, nú ætla ég að vera geggjað væmin eheh, ja hann semsagt sagði mér að það væri uppselt í ferðina sem við vorum að plana að fara í en haldiðið ekki að yndið mitt hafi bókað okkur til krítar núna 29 ágúst:) ég er svo glöð ....

já við verðum í viku liggjandi á ströndinni ,drekkandi bjór, skoðandi merka hluti og ju versla kannski eitthvað pínu8)...

núna fer þetta sumar loksins að verða búið það má segja að ég sé komin með leið á því að þrífa klósett, búa um og allt sem snýr að því að þrífa eftir aðra... Já hann Bjartmar hefur ákveðið að stinga mig af í vetur og skella sér í sólina á florida... allt gott um það að segja nema það að ég verð eftir hérna og bíð...:cry: alein:!: ... en svona er þetta...

ég er í vinnunni nuna í bíóinu það er voða lítið að gera svo ég er bara að dunda mér hérna... ég er letingi en það er í lagi svona í lok sumars því ég er að fara til KRÍTAR:)... Hafið það gott á meðan :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 11:17:16 / lindajons

ferðasaga

ferðin byrjaði kl 03:45 í hafnarfirði, tókum flugrúntuna til Keflavíkur og þegar þangað var komið biðum við Bjartmar á meðan Sigrún og Evert bókuðu okkur á eitthvað flug. 5 mín áður en vélinn okkar átti að fara komust þau að því að hún var yfirbókuð, til Amsterdam, næsta líka, til Parísar og allar aðrað vélar nema ein , svo við gátum valið að fara heim og reyna daginn eftir eða fara með einu vélinni sem var eftir til Stokkhólms sem við jú gerðum:) á leiðinni inn fengum við að vita að ein taskan hefði ekki fundist jújú auðvitað var það mín taska, svo ég hafði ekkert:whut:

Þegar við komum á staðinn fórum við að redda hóteli því við höfðum ekkert. Eftir það fórum við að versla því ég var jú ekki með neitt með mér, það þurfti að kaupa eina brók, einn bol, tannbursta, sjampó og annað nauðsynlegt. Daginn eftir var taskan ekki enn kominn og við fundum annað hótel og fórum svo að versla.

Kvöldið var allveg geggjað Arnthor frændi Bjartmars kom og sótti okkur og fór með okkur á heitustu staðina í Stokkhólmi og reddaði okkur þar frítt inn. Það var einn staður sem var geggjaður við sátum á svona V.I.P. stað ásamt þotuliði Svíðþjóðar og þar fengum við þjónustu í samræmi við það, drukkum dýrasta kampavínið á vínlistanum og þannig. mér leið eins og prinsessu:) Gaman að sjá allar stelpurnar í fleignu bolunum sínum sem komust ekki inn8)

en já við Sigrún fórum og versluðum meira daginn eftir vorum 2 tíma í H&M:haha:      Taskan mín kom kl 5 daginn eftir og ég hef aldrei á ævinni verið jafn ánægð með að sjá fötin mín:D

Ferðin var frábær fórum í matarboð, verslunarferðir, soðunarferðir, ferju, tívolí og annað sem fylgir:) ég sat ein í fluginu á leiðinni heim og ég var svo flughrædd í flugtakinu að ein flugfreyjan kom til að róa mig niður hehe:)

En Arnrún mín við vorum að spá í að koma til ykkar en við gátum ekki lengt ferðina:(, ég hefði allveg verið til í það:)

nóg í bili núna tekur bara við vinna og versló hvað á að gera þá?....


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 20:15:53 / lindajons

Loksins

jæja kæru vinir ég hálf skammast mín fyrir það hvað ég er lélegur bloggari en ég bæti það nú upp í vetur:)

en ja það er allt gott að frétta af´mér ég er bara að vinna eins og brjálaðingur á hótel eddu með genginu:) hehe mætti halda að við værum eitthvað vitskertar á köflum haha en já það er geggjað gaman. ég er búin að vinna stanslaust í sumar eða er búin að fá 4 frídaga sem er bara rugl........

En loksins er komið að fríinu ég og Bjartmar erum að fara út á fimmtudaginn ég hef ekki hugmynd um hvert við erum að fara svo þetta verður geggjað spennandi:), gæti trúað því að við værum að fara til Parísar því að það er víst búið að pannta borð handa okkur einhverstaðar hátt uppi:)

en já ég vinn bara og vinn, en eins og við stúlkurnar þá byrjum við alltaf á fullu í einhverju rugli eins  og það að við ætluðum að fara hvern einasta dag í fótbolta eftir vinnu og við höfum farið hvað, 3 eða eitthvað:) hvað kom fyrir stúlkur mínar, hehe og alla mánudaga byrja ég í átaki og hætti síðan alla þriðjudaga... ég er örugglega búin að þyngjast um 12432487123491247 kg því hvern einasta dag fæ ég eitthvað djúpsteikt á hótelinu, það styttist í ég hætti að sjá tærnar ehehheh nei djók bara rétt að lýsa matnum;)

já ég verð nu að fara að pakka því ég er að fara út (eins og ég er búin að segja 10x)

bless í bili kannski kemst ég á netkaffi úti og segji hvert ég fer:) ég er svo spennt oh forvitin:)

til hamingju með daginn elsku Arnrún mín  eða tilm lukku med din födselsdag fordi nu snakker du bare danske:)

bæbæ


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 20:57:09 / lindajons

sumarfrí

ég er komin í sumarfrí núna líka frá blogginu nenni örugglega ekkert að blogg í sumar... en það er aldrei að vita hvað kemur fyrir
En í sumar verð ég að vinna á hótel eddu og ég ætla vera í boot camp með henni Hörpu og svo verð ég alein því Bjartmar er að vinna uppí virkjun og kemur bara heim um helgar og
ég vorkenni mér svo mikið að vera bara ein svo að ég ætla að reyna að troða mér bara til hörpu:) þar að segja ef það er enn pláss:) hehe
En jæja blessbles í bili og hafið það gott í sumar

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 22:14:48 / lindajons

er prófstressið að fara með ykkur? eins og mig

Vá það er ekkert eins og ég sé að byrja í prófum, ég ligg uppírúmmi og les blogg og borða páskaegg:haha: ég er búin að vera að rifja upp í kvöld einhverjar enska þýðingar og það er svo gaman að ég ræð ekki við mig....

Helgin hefði ekki getað verið betri.... Síðasta fasta helgin mín í bíóinu þannig að núna fer ég bara að vinna á miðvikudögum en só ég var að segja frá helginni.... var bar að vinna á föstud og fór svo til Hörpu fórum auðvitað á rúntinn og borðuðum nammi... eins og alltaf... en það var svosem ekkert sem að gerðist þá....

Á laugardaginn vorum við Hrabba bara tvær að vinna og vorum geggjað duglegar... Horðfum á júróvísjón sem var fínnt... persónulega fannst mér Tyrkland geggjað:):!:  ég fylgdist allveg grant með þessu og sá t.d. að það er greinilega ekki allveg sama tíska allstaðar því að meirihlutinn að stúlkunum voru hálfnaktar og svo koma þessi skrímsli frá Finnlandi og hefðu bara ekki getað verið meira klædd....En vá strákurinn frá Rússlandi:!:8) eheh Töfff

já eftir vinnu komu nokkrar ungar meyjar til mín og auðvitað skelltum við okkur í pottinn... það fylgir bara heimsóknum til mín;).... og við vorum flottar á því og skelltum okkur í náttfötin og gerðum Huldu vitlausa í Leiru þegar hún var ný búin að þrífa allt komum við bollurnar og fengum okkur sveitt....:P

við fórum á rúnntinn og þar var allt að gerast hittum fólk og sáum. við fengum það viðurnefni að vera XXX drottingar þegar við lögðum bílnum til að hlusta á kæró rífast eheh ég er farin að tala eins og Linda Á "kæró" hehe....

verð að segja góða sögu sem var óvart mikið misskilin:

þannig var það að við vorum búnar að keyra nokkra hringi og skoða lífið og svona svo sáum við mann í hjólastól með vinum sínum og um leið var Harpa eitthvað að setja út á klæðaburð hjá einni vel vaxtni stúlku sem mátti allveg8|..... en allavega þá segji ég með minni einlægu rödd: "vá hvað þessi á góða vini sem nenna að drösslast með hann út um allt"... og stelpurnar SPRUNGU í hlátri og ég vissi ekkert afhverju, þá héldu þær að ég væri að tala um þessa feitu....Sko að hún ætti góða vini sem nenntu að drösslast með hana hehehe

já góð saga...

hey ef einhver er geggjað Góður í ísl 303 endilega heyra í mér....

hey ef einhver er geggjað Góður í stæ 403 endielga heyra í mér....

hey ef einhver er geggjað Góður í Skóla endilega heyra í mér....

ég nenni ekki að fara að taka 2. bekk upp aftur hann er nu ekki það skemmtilegur

já sumarið er að koma eins og sést á veðrinu.... hver vill koma í svona ferð?

 sisi senjor/senjorita


» 13 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 13:30:54 / lindajons

ég elska....

Að borða og sofa í ný breyttaherberginu mínu og að ganga vel í stæprófi .
ég borða mikinn mat nóg af nammi og mjög of og sveitt... ég er hrifin af nammikúrnum og ég ætla að lifa á snakki og nammi... svo er maður hiss að maður passi ekki í gallabuxur. ég var að borða rjóma pasta og amerískan kleinuhring með karmellu....:S

ég get varla andað ég borðaði svo mikið......

Í kvöld er Júróvísjón partý hjá Hörpu í höllinni og auðvitað ætla ég að borða nammi og pizzu og flögur... úúú get ekki beðið....Ætli Sylvía Nótt komist áfram....? ég held það því að allr aðrir halda að hún komist ekki áfram... hún verður því að ég er svo tapsár....

já ég er að læra um bandorma og þeir geta myndað vökvafylltar blöðrur sem geta verið allt að 5 l á stærð.... gaman að fá þannig...:)

en ég sé hvort ég verð tapsár eða í sigurvímu heheh hvort ég á eftir að blogga aftur...

ég setti inn myndir skoðið þær... og ég set inn myndir af matarboðinu en ekki strax því að ég get ekki sett fleiri myndir inn á og ég þarf því að búa til nýtt svæði og svoleiðis fer bara eftir því í hvernig skapi ég verð... í hvernig skapi haldiðið að ég sé í núna?

obbobobbb


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 15:12:43 / lindajons

Hangs

úúú alltaf bloggað einu sinni í vikur og ég held að það sé bara fínt:)

Helgin var rosaleg:) úúúúú hehe jamm ég fór á Pál Óskar í sjallanum og það var geggjað gaman hitti Bríet, Söndru og Guðrúnu vá það var gaman að rifja upp gamlar minningar eins og var alltaf í 10. bekk:)

Sátum heima og slúðruðum... allveg eins og í gamladaga... svo skelltum við stöllur okkur í sjallan...þar voru geggjað margir... og allt að gerast8|... hehe Jáhá allt að gerast maður var að bjarga og skoða og horfa og hlusta og DANSA... Alltaf sama gamla fjörið... jájá:haha:

Ég eyddi sunnudeginum í sundi:) brynju:) borða:) og sofa:) byrjaði að læra kl hálf 9 undir efnafræði..:(

En í Dag svaf ég yfir mig í fyrsta tímann í Boot Camp... en ég fór nú í píbbtest... það var fínnt bætti  mig frá því í fyrra allavega...:!:

Mjög innihaldsríkt blogg og ég lofa að setja inn myndir.. því við Bríet náðum örugglega öllum sem voru í sjallanum á geggjaðar myndir hehe:)... jam ég ætla að halda áfram að hangsa í kvosinni
bless í bili:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 09:37:40 / lindajons

....!!!

Það er solltið langt síðan ég bloggaði síðast því að sögutímarnir fara svo oft í eitthvað annað:) en allavega þá var helgin fín fór til Reykjavíkur með Bjartmari á Kagganum mínum og ég er ekki frá því að við komumst upp Bakkaselsbrekkuna á 50:) hehe góður bíll sko:8

Á föstud sofnaði ég kl 23:00 þannig að ekkert var gert það kvöldið.... en á Laugardaginn  kíkktum við í kolaportið og þar gerði ég kjarakaup... keypti jakka og bol á 750:!: geri aðrir betur hehe svo um kvöldið fórum við út að borða og svo á eitthvað pöbbaröllt með Kristínu Helgu það var fínt nema að það var alltaf  eitt af okkur sem var spurt um skilríki. Það var geggjað asnalegt að við kristín löbbuðum inn og Dyrakallinum var allveg sama en þegar Bjartmar reyndi var honum ekki sama og hleypti honum ekki inn... 8|greynilega staður fyrir 16 ára kvk en 30 ára kk það sem gamlir kallar ná sér í smá stúlkur ...:^) örugglega geggjað stuð... en það var samt gaman að rölta um hitti þar Bríet á sama stað og ég hitti Salome lítill er heimurinn

Á sunnudaginn fórum við á ljósmyndasýningu á Búkalú voða flott en eftir það fórum við á barþjónakeppni á Nordica að sjá Evert en hann var reyndar búinn þegar við komum en samt geggjað flott...:haha: við sáum tvöfaldan heimsmeistara kasta flöstum og gera kokteila... vá hvað hann var flínkur en við vorum það mestan part af kvöldinu... þar smökkuðum við roslega góðan drykk eini drykkurinn sem að ég hef smakkað og fundist allvega geggjað góður.. maður þurfti ekki að venjast honum;)... já þetta var Baccardi Razz útí sprite.... ég fer bara að skrifa grein eins og í muninn í fyrra um eitthvað Tee.. en okkur var líka boðið á árshátíð bónus en ég var svo mikill beiler og vildi bara fara heim og auðvitað var farið eftir ósk minni:haha:

jájá komum heim í gær og vorum tekinn á leiðinni af elsku blönuós löggunni:) en það er allt í lagi þar sem við eigum svo mikinn pening:S:$.

En stúlkur mínar ég held að ég hafi matarboðið á fimmtudaginn og jafnvel verður kannski bara boðið uppá pottó... betra er seint en aldrei hehe:)

en það er lítið að gera í skólanum þessa viku bara þýsku próf þannig aldei að vita nema ég verði duglega að setja inn myndir....

bless


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 00:19:07 / lindajons

ola senjor y senjorita

Vá ég er bara farin að gleyma spænskunni það er svo langt síðan ég kom heim... ég er svo lélegur bloggari...:) og jám

Á Kanarí var allveg geggjað gaman sko.. fengum gott veður allan tímann og flotterí. Það er geggjað gamana að vera á þessum stað en við vorum kannski ekki allveg á réttum tíma því á þessum tíma eru aðalega samkynhneigðir og gamalmenni... það var kannski engin geggjuð partý stemming en samt geggjað að rölta á kvöldin á aðal stöðunum að sjá allar dragdrottningarnar og barþjóna sem voru einungis á g-streng8|.. allir voða almennilegir... þarna úti voru samkynhneigðir örugglega í meiri hluta þannig að maður áttar sig betur á því hversu margir eru það sem er bara allt í lagi...:haha:

Ég gat nú ekki verslað neitt mikið sko en eitthvað smá samt:lol:... fórum í TÍVOLÍ hehe jamm það var örugglega svipað stórt og tívolíið sem var á hafnarbakka í gamladaga8) eheh rosastuð og ég er viss um að gula og bláa rennibrautin í Akureyrarlaug topp sundlaugargarðinn hehe... neinei segji svona

En jam við komum heim á miðvikudaginn síðasta og tókum dagana fram á föstudag í að gera ekki neitt.. reyndar héldum við Bjartmar matarboð og við elduðum okkur líka fiskibollur í dós með heimalagaðri karrý sósu geggjað gott :)

Ég var síðan að vinna eitthvað smá á föstudaginn og á laugardaginn fór ég á smá "pöbbarölt" fórum á karó og á kaffi ak og svo enduðum við í Sjallaum á tónleikum með Hjálmum...(við er semsagt  Björk Kartín Sunna sigrun)Það var BARA ágætt ekkert meira en það... voða fáir og meira en helmingurinn var enganveginn að fýla reggae tónlist skil ekki hvering fólkið tímdi þá að borga sig inn til að dansa eins og það dansar við skítamóral....:$ það er margt skrítið til...

Páskarnir fóru mjög friðsamlega fram vöknuðum um 10 og hugsuðum um að opna 1 af þessum 7 páskaeggjum sem við Bjartmar fengum... borðuðum Hamborgarahrygg með brúnni sósu og brúnuðum kartöflum... framkvæmdum síðan fyrri hugsanir um að opna eggið...fórum út á Grenivík og upp á kalbak mðe brettin og Kalla og Guðna renndum okkur niður sem var geggjað borðuðum aðeins meira.. fórum heim í matarboð út á Laugarland borðuðum það humar í forrrétt og svo Hamborgarahrygg með brúnni sósu og brúnuðum kartöflum...:^)Ég ákvað að beila á paskadagsdjammi og var sofnuð fyrir 00:00

Dagurinn í dag fór líka að mestu leiti í að borða Hamborgarahrygg með brúnni sósu og brúnuðum kartöflum... og sofa... en það má allveg með sanni segja að ég er búin að borða Hamborgarahrygg með brúnni sósu og brúnuðum kartöflum... fyrir næstu mánuði jafnvel ár:!:8|...

Flott Flott núna er ég búin að blogg allveg helling og skólinn fer að byrja þá verður meiri regla á blogginu hjá mér hehe:)

ola senjor y senjorita og ég þakka fyrir Hamborgarahrygginn með brúnu sósunni og brúnuðu kartöflunum...


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 14:01:33 / lindajons

páskafrí:8

jæja nuna eru ekki nema 2 timar í páskafrí því að ferðinni er heitið til KANARÍ 8)á morgun:) jibbí ég á eftir að pakka öllu niður og skrifa 4 bls ritgerð í sögu um John Stuart Mill

En jám ég á flug kl 6 í dag og við Bjarmar ætlum að fara þá bara til að geta tekið því rólega í RVK í smá tíma...

en ég hef ekkert meira að segja nema að strengirnir frá bott camp eru farnir að segja til sín núna... úffff:8|:!:

ég er geggjaður tilraunamaður í náttúrufræði núna jibbí nenni ekki að sitja og hjálpa hópnum vil bara gera þetta sjálf en....

jamm bless í bili og ég læt heyra í mér þegar ég kem heim sólbrún og fín í huges mínus eftir verslun:) 8)

kv Linda 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 17:27:04 / lindajons

úúfff

Vááá ég var að koma úr sundi eftir örugglega erfiðustu æfingu sem ég hef farið á, allavega fékk ég asmakast sem ég er ekki búin að fá í 3 ár eða svo... en allavega þá fórum við stúlkur í Boot Camp í átaki við ákváðum að skrá okkur í það á Ratatoski... og Vá ef þið viljið svitna þá er þetta svarið...


En jam þetta byrjaði nú bara nokkurð vel á skokki en svo var bara þrek og aftur þerk upp og niður stúkurnar á AK-velli og sollis og svo þessar blessaðar hvíldastöður sem er sko án efa andheitið á þessum æfingum... úff eftir það fórum við inn í sal í enn meira þrek...:)

Þetta hlómar kannski ekki spennandi en allvega ég sem hélt að ég væri í ágætis formi dó næstum og já þetta var ágæt ögrun sko þannig ég, Harpa og Bjartmar ákváðum að skrá okkur á 6 vikna námskeið:!: omg ég dey pottþétt...

En eftir 7 vikur(þetta byrjar í næstu viku) þá verður sko haldið pottapartý hehe en gaman að segja frá því þá rakst ég einmitt á síðu áðan sem hefur samskonar myndir og ég hef á minni síðu þið vitið svona bikínimyndir en á mínum þá erum við í bikiní því við erum í pottinum en það sérst kannski aðeins í bringuna á okkur á þeim

 ..... EN á síðunni sem ég rakst á áðan eru gellur sem fóru saman í sturtu og tóku myndir af sér á bikiní voða sexy.... og ég sem spái geggjað í hvort ég eigi að setja inn þessar pottamyndir því mér finnst þær oft sýna svo mikið8| en allvega þá eru ekki allir sem hugsa eins:haha:

En amm  það eru ekki nema 15 dagar þangað til ég fer til Kanarí8)jibbí:)

En eins og sérst á þessu boggi byrjaði ég eiginlega allar setningar á EN ehehe það er gott orð:) allavega gott blogg

Kveðja Linda Rakel:P


» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3